Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

1040/2018

Hafnarreglugerð fyrir hafnir Hafnarsjóðs Skagafjarðar.

1. gr.

Stærð og takmörk Sauðárkrókshafnar.

Hafnarsvæði.

Sauðárkrókshöfn tekur yfir botn Skagafjarðar, vestan Hegraness.

Takmörk á sjó eru:

Botn Skagafjarðar innan beinnar línu, er hugsast dregin úr melhorni norðan við Gönguskarðsárós í vitann í Hegranesi.

Takmörk á landi eru:

Frá stað 65°45´10" N og 19°38´98" (suðurgarði) að sunnan að bæjarmörkum við Göngu­skarðs­ár­ósa að norðan, að austan ræður stórstraumsflóðborð. Mörk að vestan eru við Strandveg og Eyrarveg.

Hafnarsvæði, er teljast innri höfn í reglugerð þessari, eru:

Sjávarsvæði innan beinnar línu frá enda suðurgarðs í enda hafnarsvæðis. Önnur sjávarsvæði teljast ytri höfn.

Landsvæði hafnarinnar skiptast í:

- Hafnarbakka og bryggjur.
- Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.
- Götur.
- Iðnaðar- og baksvæði.

2. gr.

Stærð og takmörk Hofsóshafnar.

Hofsóshöfn takmarkast að vestan af línu dreginni í hásuður 1.000 metra vestan við Hellisnes, að norðan og sunnan af tveim línum hornrétt á þá línu að norðan um Hellisnes og að sunnan úr innra Grafaróshorni.

3. gr.

Stærð og takmörk Haganesvíkurhafnar.

Takmörk Haganesvíkurhafnar að norðan eru innan hugsaðrar línu beint milli Músanestanga og Borgarnefs. Að austan, sunnan og vestan takmarkast höfnin af strandlengjunni.

4. gr.

Stjórn Hafnarsjóðs Skagafjarðar.

Sveitarfélagið Skagafjörður er eigandi hafna Hafnarsjóðs Skagafjarðar, sbr. 1.-3. gr. reglugerðar þessarar. Sveitarstjórn fer með yfirumsjón hafnarmála, en framkvæmdastjórn skal falin umhverfis- og samgöngunefnd í samráði við sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs og hafnarstjóra.

Umhverfis- og samgöngunefnd er kjörin af sveitarstjórn skv. gildandi samþykktum sveitarfélagsins. Umhverfis- og samgöngunefnd skipa 3 fulltrúar og 3 til vara og er kjörtímabil þeirra hið sama og sveitarstjórnar.

Umhverfis- og samgöngunefnd tilnefnir formann úr hópi fulltrúa umhverfis- og samgöngunefndar. Stýrir hann fundum hennar og boðar til þeirra í samráði við sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs og hafnarstjóra. Umhverfis- og samgöngunefnd skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Auk hinna kjörnu fulltrúa skulu hafnarstjóri og sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sitja fundi í umhverfis- og samgöngunefnd eftir þörfum með málfrelsi og tillögurétt.

5. gr.

Starf og valdsvið umhverfis- og samgöngunefndar.

Umhverfis- og samgöngunefnd hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafn­anna. Leita skal staðfestingar sveitarstjórnar á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs svo og lántökum hafnar­sjóðs.

Umhverfis- og samgöngunefnd hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnanna, svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnanna og landi þeirra.

Umhverfis- og samgöngunefnd veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæðis fyrir starfsemi, sem hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

Umhverfis- og samgöngunefnd gerir tillögur til sveitarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnar­svæð­inu, að höfðu samráði við Vegagerðina um gerð þess, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun umhverfis- og sam­göngu­nefndar áður en þau eru lögð fyrir sveitarstjórn.

Innan hafnar má ekki gera nein hafnarmannvirki, né breyta þeim mannvirkjum, sem nú eru og ekki heldur fylla upp né dýpka út frá landi, nema leyfi umhverfis- og samgöngunefndar og/eða sveitar­stjórnar komi til. Um mannvirkjagerð á hafnarsvæði fer samkvæmt 6. gr. hafnalaga.

6. gr.

Starf og valdsvið hafnarstjóra.

Hafnarstjóri fer með daglega stjórn hafnarinnar í umboði umhverfis- og samgöngunefndar. Hafnar­stjóri undirbýr mál, sem leggja á fyrir umhverfis- og samgöngunefnd í samráði við sviðs­stjóra veitu- og framkvæmdasviðs, veitir viðtöku erindum til hennar og sér um framkvæmd sam­þykkta umhverfis- og samgöngunefndar. Hann veitir umhverfis- og samgöngunefnd og sveitar­stjórn upplýsingar um málefni hafnarinnar. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs. Hann er yfirmaður starfsmanna hafnarinnar.

Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerðar þessarar, auk annarra reglugerða sem við eiga og fara að öðru leyti eftir samþykktum umhverfis- og sam­göngu­nefndar og sveitarstjórnar.

Hafnarstjóri sér um, að gætt sé reglu á öllu hafnarsvæðinu hvort sem er á sjó eða landi. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem hann felur störf við eftirlit og aðgæslu.

7. gr.

Um aðra starfsmenn hafnarinnar.

Hafnarstarfsmenn, sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun umhverfis- og sam­göngu­nefndar.

Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi en skipunum starfsmanna ber að hlýða þegar í stað. Telji einhver sig órétti beittan af hálfu starfsmanna hafnarinnar getur hann kært það til hafnarstjóra.

8. gr.

Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

Sérhvert skip, sem ætlar til Sauðárkróks og nota vill hafnsögumann, skal gera boð um það til hafnar­varðar með minnst 3ja klst. fyrirvara. Vísar þá hafnsögumaður skipinu leið til hafnar og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er lagst við festar í höfninni. Heimilt er hafn­sögu­manni, meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu, að banna hverjum þeim, sem ekki á lög­mætt erindi, að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð, ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

Skip, sem ekki hefur hafnsögumann um borð, skal með talstöðvarsambandi við hafnarvörð fá upplýsingar um hvar binda megi skipið, áður en haldið er inn á innri höfn. Óheimilt er að binda skip annarsstaðar en þar sem starfsmenn hafnarinnar vísa til.

9. gr.

Löggæsla á hafnarsvæði.

Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðinu.

Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga á hafnarsvæðinu er bannað að dvelja þar ef þeir með því tálma lestun, losun eða önnur störf sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggju, farmstöðvar og önnur afgreiðslu­svæði á hafnarsvæðinu. Fólk sem fer um hafnarsvæðið er þar ávallt á eigin áhættu og ábyrgð.

Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða í henni. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.

Hafnarstjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er í höfninni en hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.

10. gr.

Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnarstjóra, tálmar greiðri notkun hafnarinnar, skal það fært burt svo fljótt sem auðið er af eiganda, umráðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því, má hafnarstjóri láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað, að vali og eftir mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi skip, til lúkningar á kostnaði, á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjar­lægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips­ins.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en hafnarinnar, er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnarstjóri fyrirskipa eig­anda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrir­mælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráða­manns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað, eftir vali og mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, til lúkningar á kostnaði, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráða­manns.

11. gr.

Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina eða ytri höfn hennar.

Bannaður er hvers konar hvalskurður í og við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt, inn í höfnina, hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþæg­indum í höfninni nema leyfi hafnarstjóra komi til.

Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíu, lýsi, olíusora eða annað sem valdið getur mengun.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati hafnarstarfsmanna, gert forsvaranlegar ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.

12. gr.

Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Allir þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfninni, skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnarinnar með beiðni þar að lútandi.

Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum hafnarinnar um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af vanskilunum sem koma fram í 1. málslið þessarar málsgreinar.

13. gr.

Hverjum skal gefa fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra eða stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipanir og er það jafngilt sem skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

14. gr.

Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra sem leið eiga um höfn og hafnarsvæði, vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja dóm­kvaddra manna, dómkvöddum af héraðsdómi Norðurlands vestra. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, innan mánaðar frá því matsgerð samkvæmt 2. mgr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostn­aður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostn­aður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr. skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

15. gr.

Kæruheimild.

Notendum hafna Hafnarsjóðs Skagafjarðar, sbr. 1.-3. gr. er heimilt að skjóta ákvörðunum umhverfis- og samgöngunefndar samkvæmt reglugerð þessari, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Samgöngustofu. Ákvörðunum Samgöngustofu má skjóta til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

16. gr.

Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti sakamála.

17. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og 17. gr. laga nr. 417/2003 um vaktstöð siglinga, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur brott hafnarreglugerð nr. 425/2005, fyrir hafnir Hafnarsjóðs Skagafjarðar.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. nóvember 2018.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica