Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

571/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 602/2008 um kröfur er varða verklagsreglur og flugáætlanir innan samevrópska loftrýmisins.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi liður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/139 frá 29. janúar 2018 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1033/2006 að því er varðar til­vísanir í ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 95/2018 frá 27. apríl 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 17. maí 2018, bls. 222.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. f og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 31. maí 2018.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica