918/2016
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 652/2009, um nefnd Evrópusambandsins um öryggi á höfunum og varnir gegn mengun frá skipum.
1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, d-liður, svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/103 frá 27. janúar 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2099/2002 um að koma á fót nefnd um öryggi á höfunum og varnir gegn mengun frá skipum (COSS) sem vísað er til í 56n í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2016 frá 3. júní 2016 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/103 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, 18. ágúst 2016, bls. 441 og verður hluti af reglugerð þessari.
2. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 24. október 2016.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Björn Freyr Björnsson.