1. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 1. gr. reglugerðarinnar:
Síðari málsliður 1. mgr. fellur niður.
2. gr.
Hvar sem orðið "Flugmálastjórn" eða orðin "Flugmálastjórn Íslands", í hvers konar beygingarfalli, koma fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Samgöngustofa.
Hvar sem orðið "samgönguráðuneyti" í hvers konar beygingarfalli, kemur fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: innanríkisráðuneyti.
3. gr.
3. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
4. gr.
Heiti II. kafla reglugerðarinnar verður svohljóðandi: Skipulag loftrýmisumdæma, eftirlit o.fl.
5. gr.
Á eftir 4. gr. kemur ný grein, 4. gr. a, svohljóðandi:
Áætlun um frammistöðu og markmið.
Samgöngustofa skal gera drög að frammistöðuáætlun í samráði við veitendur flugleiðsöguþjónustu, loftrýmisnotendur, rekstraraðila flugvalla og samræmingaraðila flugvalla. Áætlunin skal staðfest af ráðherra. Áætlunin skal fela í sér landsbundin markmið og skal tryggja samræmi við svæðisbundin frammistöðumarkmið á ICAO NAT svæðinu.
Áætlunin skal einnig fela í sér viðeigandi hvatakerfi.
6. gr.
Orðin "í innra bókhaldi sínu" í 2. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar falla brott.
7. gr.
12. gr. orðist svo ásamt fyrirsögn:
Gjaldtökukerfi.
Í samræmi við meginreglur 15. og 16. gr. þjónustureglugerðarinnar skal gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu stuðla að auknu gagnsæi í ákvörðunum, álagningu og gjaldtöku af hálfu loftrýmisnotenda og stuðla að kostnaðarhagkvæmni við veitingu flugleiðsöguþjónustu og skilvirkni flugs en samtímis að viðhalda hámarksöryggisstigi. Þetta kerfi skal vera í samræmi við 15. gr. Chicago-samningsins frá 1944 og leiðargjaldakerfi Evrópustofnunar um öryggi í flugleiðsögu eða við samninginn um sameiginlega greiðslu kostnaðar af tiltekinni flugleiðsöguþjónustu á Íslandi, eftir því sem við á.
8. gr.
Í stað orðsins "flugvalla" í 15. gr. kemur: rekstraraðila flugvalla.
9. gr.
16. gr. orðist svo ásamt fyrirsögn:
Grunnkröfur.
Evrópska netið fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar (EATMN), eins og það er skilgreint i 1. viðauka rekstrarsamhæfisreglugerðarinnar, kerfi þess, kerfishlutar og tilheyrandi verklagsreglur skulu uppfylla grunnkröfurnar sem settar eru fram í II. viðauka við rekstrarsamhæfisreglugerðina.
10. gr.
Í stað 24. gr. kemur nýr texti sem orðast svo, með fyrirsögn:
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
11. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. janúar 2015.
Innanríkisráðuneytinu, 18. desember 2014.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.