Innanríkisráðuneyti

828/2013

Hafnarreglugerð fyrir Hvammstangahöfn.

1. gr.

Stærð og takmörk hafnarinnar.

Takmörk hafnarinnar á sjó eru: Að norðan af línu er hugsast dregin beint í vestur á mörkum Ytri-Árbakka og Sæbóls vestur á miðjan Miðfjörð. Að sunnan af línu er hugsast dregin beint í vestur á móts við Veigastíg vestur á miðjan Miðfjörð. Að vestan takmarkast höfnin af línu er hugsast dregin í norður / suður takmarkalínur hafnarinnar á miðjum Miðfirði. Að austan af strandlengjunni í suðri á móts við Veigastíg til norðurs að mörkum Ytri-Árbakka og Sæbóls.

Takmörk hafnarinnar á landi eru: Að norðan, lóð Strandgötu 1. Að austan, Brekkugata og Höfðabraut og brekkan vestan Höfðabrautar. Að sunnan, bein lína frá Veigastíg til vesturs til sjávar sunnan Kúskeljakletts. Að vestan, stórstraumsfjöruborð.

Helstu hafnarsvæði eru: Allt sjávarsvæði innan beinnar línu er hugsast dregin frá Norðurgarði að Kúskeljakletti þ.m.t. viðlegukantar og fiskvinnslusvæði við höfnina.

Landsvæði hafnarinnar skiptast í:

Hafnarbakka og bryggjur: Norðurgarð, Austurbryggju, Suðurbryggju og smábáta­höfn.
Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði: Farmstöð og afgreiðslusvæði eru við Norður­garð, þaðan til suðurs meðfram Hafnarbraut og inná geymslusvæði hafnar­innar suður að Kúskeljakletti.
Götur: Hafnarbraut.

Lóðir sem eru innan takmarka hafnarinnar á landi sem skilgreind eru í 2. mgr. eru undir landsvæði Hvammstangahafnar.

Lega hafnarsvæðisins er einnig sýnd á viðfestu korti sem í er jafnframt hnitsetning og merkt er sem fylgiskjal 1 og er hluti af reglugerð þessari.

2. gr.

Stjórn hafnarinnar.

Húnaþing vestra, er eigandi hafnarinnar. Sveitarstjórn fer með yfirstjórn hafnarmála, en framkvæmdastjórn skal falin byggðarráði og hafnarstjóra.

Byggðarráð fer með stjórn Hvammstangahafnar og er það skipað 3 aðalfulltrúum og 3 til vara og er kjörtímabil þeirra eitt ár í senn.

Auk hinna kjörnu fulltrúa skal hafnarstjóri, sem hefur málfrelsi og tillögurétt, sitja fundi byggðarráðs þegar fjallað er um málefni hafnarinnar.

3. gr.

Starfs- og valdsvið hafnarstjórnar.

Byggðarráð hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnarinnar. Leita skal staðfestingar sveitarstjórnar á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs svo og lántökum hafnarsjóðs lengur en yfirstandandi fjárhagsár.

Byggðarráð hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar.

Byggðarráð veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða tak­marka afnot hafnarsvæðis fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilegri hafnar­starfsemi.

Byggðarráð gerir tillögur til sveitarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun byggðarráðs áður en þau eru lögð fyrir sveitarstjórn.

4. gr.

Starfs- og valdsvið hafnarstjóra.

Sveitarstjóri Húnaþings vestra gegnir starfi hafnarstjóra. Hafnarstjóri fer með daglega stjórn hafnarinnar í umboði byggðarráðs. Hafnarstjóri undirbýr mál sem leggja á fyrir byggðarráð og varða málefni hafnarinnar, veitir viðtöku erindum til hennar og sér um framkvæmd samþykkta byggðarráðs um hafnarmál. Hann veitir byggðarráði og sveitar­stjórn upplýsingar um málefni hafnarinnar. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs. Hann er yfirmaður allra starfsmanna hafnar­innar og sér um ráðningu þeirra og uppsögn.

Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnareglugerða, auk reglugerðar þessarar og fara að öðru leyti eftir samþykktum byggðarráðs og sveitar­stjórnar.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á öllu hafnarsvæðinu hvort sem er á sjó eða landi. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem hann felur störf við eftirlit og aðgæslu.

5. gr.

Um aðra starfsmenn hafnarinnar.

Hafnarstarfsmenn sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna skipa­þjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun byggðarráðs.

Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi en skipunum starfsmanna ber að hlýða þegar í stað. Telji einhver sig órétti beittan af hálfu starfsmanna hafnarinnar getur hann kært það til hafnarstjóra.

6. gr.

Löggæsla á hafnarsvæði.

Embætti sýslumannsins á Blönduósi hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðinu.

Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga á hafnarsvæðinu er bannað að dvelja þar ef þeir með því tálma lestun, losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauð­syn­legan akstur hvers konar ökutækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggju, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnarsvæðinu. Fólk sem fer um hafnarsvæðið er þar ávallt á eigin áhættu og ábyrgð.

Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Sömu­leiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis hafnar­stjóra. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðar­færi bótalaust.

Hafnarstjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er í höfninni en hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.

7. gr.

Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnarstjóra, tálmar greiðri notkun hafnarinnar, skal það fært burtu svo fljótt sem auðið er af eiganda, umráðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því, má hafnarstjóri láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað, að vali og eftir mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi skip, til lúkningar á kostnaði, á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en hafnar­innar, er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnar­stjóri fyrirskipa eiganda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað, eftir vali og mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hag­kvæm­astur þykir, til lúkningar á kostnaði, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns.

8. gr.

Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina.

Bannaður er hvers konar hvalskurður í eða við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt, inn í höfnina, hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfninni nema leyfi hafnarstjóra komi til.

Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíu, lýsi, olíusora eða öðru sem valdið getur mengun.

Ábyrgðarmenn skips, eins og kveðið er á um í 10. gr. þessarar reglugerðar, sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati hafnarstarfsmanna, gert forsvaranlegar ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.

9. gr.

Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Allir þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfninni, skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnarinnar með beiðni þar að lútandi.

Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu, sem eru í van­skilum með gjöld til hafnarinnar og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum hafnarinnar um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af van­skilum sem koma fram í 1. málslið greinarinnar.

10. gr.

Hverjum gefa skal fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skips­höfninni skipanir og er það jafngilt sem skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

11. gr.

Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra sem leið eiga um höfn og hafnsvæði, vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja dómkvaddra matsmanna, sem dómkvaddir eru af héraðsdómi Norðurlands vestra. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, innan mánaðar frá því matsgerð samkvæmt 2. gr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostnaður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostnaður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr. skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

12. gr.

Kæruheimild.

Notendum Hvammstangahafnar er heimilt að skjóta ákvörðunum hafnarstjórnar sam­kvæmt reglugerð þessari, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Siglingastofnunar Íslands. Ákvörðunum Siglingastofnunar má skjóta til samgönguráðherra. Um máls­meðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

13. gr.

Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

14. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafn­framt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Hvammstangahöfn nr. 283/2006.

Innanríkisráðuneytinu, 27. ágúst 2013.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica