Innanríkisráðuneyti

177/2011

Hafnarreglugerð fyrir hafnir Norðurþings. - Brottfallin

1. gr.

Stærð og takmörk hafnanna.

Hafnir Norðurþings eru: Húsavíkurhöfn, Kópaskershöfn og Raufarhafnarhöfn.

Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Húsavíkurhöfn eru:

Á sjó:

Skilgreint hafnarsvæði er austan línu sem hugsast dregin úr Kaldbaksnefi fremst í fyrirhugaðan Snásugarð, eins og hann er sýndur í aðalskipulagi Norðurþings, og með honum að utan í svonefndar Snásur í Húsavíkurhöfða.

Á landi:

Í samræmi við aðalskipulag Norðurþings á hverjum tíma.



Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Kópaskershöfn eru:

Á sjó:

Hafnarsvæði Kópaskershafnar nær að austan frá suðurenda lóðar Fjalla­lambs á Röndinni 3 eftir línu sem hugsast dregin til vesturs í syðsta enda sjóvarnargarðs að vestan.

Á landi:

Í samræmi við aðalskipulag Norðurþings á hverjum tíma.



Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Raufarhafnarhöfn eru:

Á sjó:

Hafnarsvæði Raufarhafnarhafnar takmarkast af línu sem hugsast dregin úr norðausturhorni Raufarhafnarhöfða í Hólshöfðatá.

Á landi:

Í samræmi við aðalskipulag Norðurþings á hverjum tíma.



Landsvæði hafnanna skiptast í:

  • Hafnarbakka og bryggjur.
  • Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.
  • Götur.
  • Lóðir, iðnaðar- og baksvæði.

2. gr.

Stjórn hafnanna.

Norðurþing er eigandi hafnanna. Bæjarstjórn Norðurþings fer með yfirstjórn hafnamála, en framkvæmdastjórn skal falin framkvæmda- og hafnanefnd og hafnastjóra.

Framkvæmda- og hafnanefnd er kjörin af bæjarstjórn skv. þeim reglum er gilda um kjör fastra nefnda bæjarstjórnar. Framkvæmda- og hafnanefnd skipa 5 fulltrúar og 5 til vara og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn kýs formann og varaformann úr hópi kjörinna framkvæmda- og hafna­nefndarmanna. Nefndin skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Auk hinna kjörnu fulltrúa skal hafnastjóri sitja fundi framkvæmda- og hafnanefndar með málfrelsi og tillögurétt.

3. gr.

Starfs- og valdsvið hafnastjórnar.

Framkvæmda- og hafnanefnd hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbygg­ingum hafnanna. Leita skal staðfestingar bæjarstjórnar á fjárhagsáætlun hafna­sjóðs svo og lántökum hafnasjóðs til lengri tíma en yfirstandandi fjárhagsárs.

Framkvæmda- og hafnanefnd hefur ákvörðunarvald um daglegan rekstur hafnanna, svo sem ráðstöfun á aðstöðu í eigu hafnasjóðs, þ.m.t. leigu á húsnæði í eigu hafnanna og landi þeirra.

Framkvæmda- og hafnanefnd veitir leyfi til starfsemi á hafnasvæðum og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnasvæða fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilega hafnastarfsemi.

Framkvæmda- og hafnanefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnasvæðum, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulags- og byggingarnefndar. Byggingamál á hafnasvæðum skulu hljóta umfjöllun framkvæmda- og hafnanefndar áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn.

4. gr.

Starfs- og valdsvið hafnastjóra.

Bæjarstjórn í samráði við framkvæmda- og hafnanefnd ræður hafnastjóra til að fara með daglega stjórn hafnanna í umboði hennar. Hafnastjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði gildandi hafnalaga, reglugerð um hafnamál auk reglugerðar þessarar og ber ábyrgð á að rekstur hafnanna sé í samræmi við þau. Hann skal í starfi sínu að öðru leyti fara eftir samþykktum framkvæmda- og hafnanefndar og bæjarstjórnar. Hafnastjóri undirbýr mál sem leggja á fyrir framkvæmda- og hafnanefnd, veitir viðtöku erindum til hennar og sér um að framfylgja samþykktum hennar. Hann veitir hafnastjórn og bæjarstjórn upplýsingar um málefni hafnanna og ráðgjöf um málefni er varða rekstur þeirra. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnasjóðs. Hafnastjóri er yfirmaður allra starfsmanna hafnanna og fer með stjórnun starfs­manna­mála vegna þeirra, þar með talið ráðningu undirmanna sinna og uppsagnir, í samráði við framkvæmda- og hafnanefnd.

Hafnastjóri sér um að gætt sé reglu á hafnasvæðunum hvort sem er á sjó eða landi. Öllum er skylt að hlýða fyrirmælum hans innan marka hafnasvæða í Norðurþingi, eða þeirra sem hann felur störf við eftirlit og aðgæslu innan sömu svæða.

5. gr.

Um aðra starfsmenn hafnanna.

Hafnastarfsmenn sem hafa umsjón með eignum hafnanna, gæta reglu og sinna skipa­þjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun framkvæmda- og hafnanefndar.

Starfsmenn hafnanna skulu gæta allrar kurteisi í starfi en skipunum þeirra innan hafnasvæða ber að hlýða þegar í stað. Telji einhver sig órétti beittan af hálfu starfsmanna hafnanna getur hann kært það til hafnastjóra. Tilskipunum starfsmanns skal þó hlýtt engu að síður.

6. gr.

Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

Ekki er hafnsöguskylda í höfnum Norðurþings og enginn hafnsögumaður er starfandi hjá höfnunum. Hafnsöguþjónusta er þó veitt ef þess er óskað.

Ef óskað er hafnsögu, skulu forráðamenn skips tilkynna um ferð þess til hafnarvarða viðkomandi hafnar með minnst 4 klst. fyrirvara. Hafnsögumanni er skylt að fara til móts við skip sem hefur tilkynnt um ferðir sínar með tilskildum fyrirvara allt að ytri mörkum þess hafnarsvæðis sem um ræðir ef skipstjóri æskir þess.

Hafnsögumaður vísar skipinu leið til hafnar og má ekki yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er komið í viðlegu. Heimilt er hafnsögumanni meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu að banna hverjum þeim sem ekki á lögmætt erindi að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð ber forráðamönnum skipsins að sjá honum fyrir fæði.

Hafnir Norðurþings veita, eftir atvikum, aðstoð ef þess er óskað, sjá um bindingu skipa, sölu og afgreiðslu vatns og rafmagns. Yfirhafnarvörður eða æðsti starfsmaður við­komandi hafnar á vakt ákveður notkun báta og mannafla eftir aðstæðum hverju sinni. Ef hafnsögumaður er á staðnum ræður hann þessum þáttum.

Dráttarbátar á vegum hafnanna eru í þjónustu og á ábyrgð þess skips, er þeir aðstoða, frá því þeir taka við taug, eða fyrirmælum stjórnanda skipsins, er aðstoðar nýtur, og þar til taug er sleppt eða fyrirmæli gefin um að aðstoð sé lokið. Hafnsögumaður skal vera í skipi, er það nýtur aðstoðar dráttarbáts.

7. gr.

Löggæsla á hafnasvæðum.

Lögreglan í umdæmi lögreglustjórans á Húsavík hefur á hendi almenna löggæslu á svæðum hafna Norðurþings.

Þeim sem ekki eiga lögmætt erindi á hafnasvæðin er óheimilt að dvelja þar ef þeir torvelda eða hindra lestun, losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Hafnastjóra og starfsmönnum hafnanna er heimilt að banna ónauðsynlegan akstur hvers konar öku­tækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggjur, hafnarbakka, farm­stöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnasvæðunum ef þörf krefur. Fólk sem fer um hafna­svæði er þar ávallt á eigin áhættu og ábyrgð.

Óheimilt er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við hafnirnar eða í þeim nema að fengnu leyfi lögreglustjóra, hafnastjóra og yfirvalda sveitarfélagsins. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnasvæðunum án leyfis hafnastjóra.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnasvæðunum nema að fengnu leyfi hafnastjóra. Fiskveiðar á hafnasvæðum mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Óheimilt er með öllu að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir. Starfsmenn hafnanna skulu fjarlægja veiðarfæri sem lögð eru á merktar siglingaleiðir, á kostnað eiganda verði hann ekki tafarlaust við tilskipunum þess efnis að fjarlægja þau, enda teljast þau vera í reiðileysi. Hafnastarfsmönnum ber ekki skylda til að geyma veiðarfæri sem fjarlægð eru af þessum sökum og bera ekki ábyrgð á skemmdum sem verða á veiðarfærunum við færslu þeirra.

Hafnastjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er í höfnunum. Hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.

8. gr.

Bryggjur, skipsflök og hlutir í reiðileysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnastjóra, tálmar greiðri notkun hafnanna, skal það fært burtu svo fljótt sem auðið er af eiganda, umráðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því, má hafnastjóri láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað, að vali og eftir mati hafnastjóra.

Hafnastjóra er heimilt að láta selja viðkomandi skip, til lúkningar á kostnaði, á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnasvæðum án leyfis hafnastjóra.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en hafnanna, er í reiðileysi á hafnarsvæði og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnastjóri fyrirskipa eiganda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað, eftir vali og mati hafnastjóra.

Hafnastjóra er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hag­kvæmastur þykir, til lúkningar á kostnaði, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns.

9. gr.

Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta á umráðsvæði hafna Norðurþings. Stranglega er bannað að dæla eða láta renna í hafnirnar olíu, lýsi, olíusora eða annað sem valdið getur mengun.

Hvalskurður er bannaður í eða við hafnirnar. Ekki má draga, reka eða flytja á annan hátt, inn í hafnirnar, hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðar­truflun eða óþægindum í höfnunum nema að fengnu leyfi hafnastjóra. Skulu þá gerðar forsvaranlegar ráðstafanir til að lágmarka áhrif á umhverfi hafnanna.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati hafnastarfsmanna, gert forsvaranlegar ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.

10. gr.

Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfnunum, skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnanna með beiðni þar að lútandi.

Hafnastjóra er heimilt að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnanna og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum hafnanna um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af vanskilum sem koma fram fyrr í þessari málsgrein.

11. gr.

Hverjum gefa skal fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra eða stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipanir og er það jafngilt því að skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

12. gr.

Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra, sem á leið sinni um hafnir og hafnasvæði, valda skemmdum á höfnum, mannvirkjum þeirra eða áhöldum, fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja matsmanna, sem dómkvaddir skulu af héraðsdómi þess svæðis sem um ræðir. Skal leitað til héraðsdóms Norðurlands eystra um dómkvaðningu matsmanna. Hvorum málsaðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, innan mánaðar frá því matsgerð samkvæmt 2. mgr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostnaður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostnaður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr. skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

13. gr.

Kæruheimild.

Notendum hafna Norðurþings er heimilt að skjóta ákvörðunum framkvæmda- og hafna­nefndar, samkvæmt reglugerð þessari, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Siglinga­stofnunar Íslands. Ákvörðunum Siglingastofnunar má skjóta til innanríkis­ráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

14. gr.

Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

15. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og 17. gr. laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt falla úr gildi hafnarreglugerðir fyrir Húsavíkurhöfn, nr. 1073/2005, Kópaskershöfn, nr. 992/2005, og Raufarhafnarhöfn nr. 149/1964 með síðari breytingum.

Innanríkisráðuneytinu, 11. febrúar 2011.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica