Samgönguráðuneyti

1030/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 374/2001, um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist svohljóðandi bráðabirgðaákvæði:

Þrátt fyrir ákvæði í 2. málsl. 1. mgr. 2. gr. og þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 5. gr. reglu­gerðar­innar skal eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga taka mið af því tímabundna ástandi sem ríkir í efnahagsmálum á Íslandi og áhrifa þess á fjármál sveitarfélaganna á árinu 2009.

Eftirlitsnefndin skal því ekki hefja formlegar aðgerðir, sbr. 11. gr. og með vísan til III. kafla reglugerðarinnar, nema ljóst sé að samdóma mati nefndarinnar, að fjárhagur viðkomandi sveitarfélags stefni í óefni miðað við fyrirliggjandi gögn og að aðrar efnahagsaðgerðir stjórnvalda muni ekki hafa þýðingu fyrir rekstur og afkomu sveitar­félagsins á rekstrarárinu 2009.

Fjárhagsáætlun sem afgreidd er með rekstrarhalla kallar ekki sjálfkrafa á aðgerðir af hálfu eftirlitsnefndar. Engu að síður ber sveitarfélögum sem setja fram slíkar fjárhags­áætlanir fyrir árið 2009 að senda eftirlitsnefnd greinargerð um ástæður hallans í samræmi við 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar.

Ákvæði þetta gildir til 31. desember 2009.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 74. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 5. nóvember 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica