Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1111/2008

Hafnarreglugerð fyrir Miðsandshöfn, Hvalfjarðarsveit.

1. gr. Stærð og takmörk hafnarinnar.

Reglugerð þessi gildir um Miðsandshöfn að Digralæk 1, Hvalfjarðarsveit.

Takmörk á sjó eru frá fjöru fyrir landi Miðsands og út að netlögum.

Takmörk á landi eru við lóðarmörk Digralækjar 1.

Hafnarsvæði er einnig sýnt á viðfestu korti sem er hluti af reglugerð þessari, sbr. fylgiskjal.

Landsvæði hafnarinnar skiptast í:

  1. Hafnarbakka og bryggjur.
  2. Legufæri.

2. gr. Stjórn hafnarinnar.

Skeljungur fasteignir ehf. er eigandi hafnarinnar. Stjórn félagsins tilnefnir þrjá fulltrúa í hafnarstjórn og einn til vara. Hafnarstjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.

3. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnarinnar. Leita skal staðfestingar stjórnar eiganda hafnarinnar á fjárhagsáætlun hafnarinnar svo og lántökum lengur en yfirstandandi fjárhagsár.

Hafnarstjórn fer með daglega stjórn hafnarinnar, hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ.m.t. leigu á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar. Hafnarstjórn sér um að gætt sé reglu á öllu hafnarsvæðinu hvort sem er á sjó eða landi. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hennar eða þeirra sem hún felur störf við eftirlit og aðgæslu.

Hafnarstjórn veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæðis fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

Hafnarstjórn skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnareglugerðar hverju sinni. Hafnarstjórn skal innan valdsviðs síns gæta hagsmuna hafnar. Hafnarstjórn ber ábyrgð gagnvart eigendum hafnar á rekstri og viðhaldi hafnar.

Hafnarstjórn gerir tillögur til stjórnar eiganda varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar áður en þau eru lögð fyrir sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.

4. gr. Um starfsmenn eigenda hafnarinnar.

Þeir starfsmenn eigenda hafnarinnar sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna skipaþjónustu skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

Framangreindir starfsmenn skulu gæta allrar kurteisi í starfi en skipunum starfsmanna ber að hlýða þegar í stað. Telji einhver sig órétti beittan af hálfu framangreindra starfsmanna getur hann kært það til hafnarstjórnar.

5. gr. Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

Höfnin útvegar, eftir atvikum, aðstoð dráttarbáta, sér um bindingu skipa, sölu og afgreiðslu vatns og rafmagns og móttöku úrgangs eins og lög gera ráð fyrir.

Dráttarbátar eru í þjónustu og á ábyrgð þess skips, er þeir aðstoða, frá því þeir taka við taug, eða fyrirmælum stjórnanda skipsins, er aðstoðar nýtur, og þar til taug er sleppt eða fyrirmæli gefin um að aðstoð sé lokið. Hafnsögumaður skal vera í skipi, er það nýtur aðstoðar dráttarbáts.

6. gr. Löggæsla á hafnarsvæði.

Lögreglan í Borgarnesumdæmi hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðinu.

Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga á hafnarsvæðinu er bannað að dvelja þar ef þeir með því tálma lestun, losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Ónauðsynlegur akstur hvers konar ökutækja og ónauðsynleg umferð gangandi fólks um bryggju, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnarsvæðinu er bönnuð. Fólk sem fer um hafnarsvæðið er þar ávallt á eigin áhættu og ábyrgð.

Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni án leyfis. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjórnar. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.

Hafnarstjórn skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er í höfninni en hún gefur lögreglunni skýrslu, telji hún þess þörf.

7. gr. Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnarstjórnar, tálmar greiðri notkun hafnarinnar, skal það fært burtu svo fljótt sem auðið er af eiganda, umráðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því, má hafnarstjórn láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað, að vali og eftir mati hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn er heimilt að láta selja viðkomandi skip, til lúkningar á kostnaði, á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjórnar.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en hafnarinnar, er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnarstjóri fyrirskipa eiganda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað, eftir vali og mati hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, til lúkningar á kostnaði, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns

8. gr. Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina eða ytri höfn hennar.

Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt, inn í höfnina, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfninni nema leyfi hafnarstjórnar komi til.

Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíu, lýsi, olíusora eða annað sem valdið getur mengun.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati þeirra starfsmanna eigenda skv. 4. gr., gert forsvaranlegar ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.

9. gr. Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Allir þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfninni, skulu snúa sér beint til starfsmanna eigenda hafnarinnar skv. 4. gr. með beiðni þar að lútandi.

Heimilt er hafnarstjórn að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum hafnarinnar um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af vanskilum sem koma fram í 1. málslið greinarinnar.

10. gr. Hverjum gefa skal fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipanir og er það jafngilt sem skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

11. gr. Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra sem leið eiga um höfn og hafnarsvæði, vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja dómkvaddra matsmanna, sem dómkvaddir eru af héraðsdómi Reykjavíkur. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, innan mánaðar frá því matsgerð samkvæmt 2. mgr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostnaður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostnaður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr. skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

12. gr. Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

13. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Samgönguráðuneytinu, 14. nóvember 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.