Innviðaráðuneyti

373/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð um flugreglur nr. 770/2010.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/404 frá 30. janúar 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 923/2012 að því er varðar að uppfæra við­eigandi ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, að ljúka við gerð verklags sem gildir um bilun í þráðlausum fjarskiptum og að fella brott viðbæti viðaukans við þá reglugerð, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 245 frá 25. október 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 379-408.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 188. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 21. mars 2025.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica