Innviðaráðuneyti

528/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.

1. gr.

54. gr. reglugerðarinnar með fyrirsögninni "Áhættumatskerfi" orðast svo:

Samgöngustofa skal koma upp áhættumatskerfi varðandi fyrirtæki. Skal reiknireglan sem kerfið byggir á vera til samræmis við það sem fram kemur í framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnar­innar (ESB) 2022/695 frá 2. maí 2022 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2006/22/EB að því er varðar sameiginlega formúlu til að reikna út áhættumat flutningafyrirtækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2023, 17. mars 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 454-457.

 

2. gr.

Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, t-liður, sem verður svohljóðandi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/695 frá 2. maí 2022 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2006/22/EB að því er varðar sameiginlega for­múlu til að reikna út áhættumat flutningafyrirtækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 66/2023, 17. mars 2023, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 454-457.

 

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breyt­ingum, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 16. maí 2023.

 

F. h. r.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Gauti Daðason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica