Innviðaráðuneyti

526/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.

1. gr.

Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, u-liður, sem verður svohljóðandi:

u. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1228 frá 16. júlí 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/799 að því er varðar kröfur um smíði, prófun, uppsetningu, virkni og viðgerðir snjallökurita og íhluta þeirra, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 339/2022, 9. desember 2022, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 11. maí 2023, bls. 403-542.

 

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 54. og 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast gildi 21. ágúst 2023.

 

Innviðaráðuneytinu, 30. maí 2023.

 

F. h. r.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Gauti Daðasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica