Innviðaráðuneyti

1299/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.

1. gr.

Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1057 frá 15. júlí 2020 um sértækar reglur að því er varðar tilskipun 96/71/EB og tilskipun 2014/67/ESB um útsendingu ökumanna á sviði flutninga á vegum og um breytingu á tilskipun 2006/22/EB að því er varðar kröfur um fram­fylgd og á reglugerð (ESB) nr. 1024/2012, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 188/2022 frá 10. júní 2022, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 66, frá 13. október 2022, bls. 37-38.

 

2. gr.

Með reglugerð þessari er innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1057 frá 15. júlí 2020 um sértækar reglur að því er varðar tilskipun 96/71/EB og tilskipun 2014/67/ESB um útsend­ingu ökumanna á sviði flutninga á vegum og um breytingu á tilskipun 2006/22/EB að því er varðar kröfur um framfylgd og á reglugerð (ESB) nr. 1024/2012, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 188/2022 frá 10. júní 2022, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 66, frá 13. október 2022, bls. 37-38.

 

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 54. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 29. nóvember 2022.

 

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Jónas Birgir Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica