Innanríkisráðuneyti

689/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 780/2010 um yfirgjaldsþjónustu í tal- og farsímanetum.

1. gr.

Í 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar fellur niður málsliðurinn "Í prentuðum auglýsingum og mynd­auglýsingum skulu verðupplýsingar vera með a.m.k. jafnstórum stöfum og megintexti".

2. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 5. mgr. 38. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003, öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 18. júlí 2016.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica