Innanríkisráðuneyti

18/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010 og reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.

I. KAFLI

Breyting á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010.

1. gr.

1. málsliður 9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi að undanskilinni grein 6.4 í viðauka I við reglugerðina sem tekur gildi 1. janúar 2017.

II. KAFLI

Breyting á reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.

2. gr.

9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi að undanskilinni grein 6.4 í viðauka I við reglugerðina sem tekur gildi 1. janúar 2017.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1144/2012 um breytingu á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010 og reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.

Innanríkisráðuneytinu, 15. janúar 2016.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica