Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Stofnreglugerð

408/2010

Hafnarreglugerð fyrir Fjallabyggðarhafnir.

1. gr. Stærð og takmörk hafnanna.

Hafnir Fjallabyggðarhafna eru: Ólafsfjarðarhöfn og Siglufjarðarhöfn.

Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Ólafsfjarðarhöfn eru:

Á sjó: Innan línu sem hugsast dregin frá Hrafnavogum að vestan í svonefnda Ófærugjá að austan.

Á landi: Í samræmi við aðalskipulag fyrir Fjallabyggð á hverjum tíma.

Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Siglufjarðarhöfn eru:

Á sjó: Hafnarsvæði Siglufjarðarhafnar takmarkast af Siglunestá að austan í Djúpavog að vestan.

Á landi: Í samræmi við aðalskipulag fyrir Fjallabyggð á hverjum tíma.

Landsvæði hafnanna skiptast í:

  1. Hafnarbakka og bryggjur.
  2. Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.
  3. Götur.
  4. Lóðir, iðnaðar- og baksvæði.

2. gr. Stjórn hafnanna.

Fjallabyggð er eigandi hafnanna. Bæjarstjórn Fjallabyggðar fer með yfirstjórn hafnamála, en framkvæmdastjórn skal falin hafnarstjórn og hafnarstjóra.

Hafnarstjórn er kjörin af bæjarstjórn skv. þeim reglum er gilda um kjör fastra nefnda bæjarstjórnar. Hafnarstjórn skipa 5 fulltrúar og 5 til vara og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna hafnarstjórnarmanna. Hafnarstjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Auk hinna kjörnu fulltrúa skal hafnarstjóri sitja fundi hafnarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt.

3. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnanna. Leita skal staðfestingar bæjarstjórnar á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs svo og lántökum hafnarsjóðs lengur en yfirstandandi fjárhagsár.

Hafnarstjórn hefur ákvörðunarvald um daglegan rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu í eigu hafnarsjóðs, þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar.

Hafnarstjórn veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæðis fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

Hafnarstjórn gerir tillögur til bæjarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn.

4. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjóra.

Hafnarstjórn ræður hafnarstjóra til að fara með daglega stjórn hafnanna í umboði hennar. Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði gildandi hafnalaga, reglugerð um hafnamál auk reglugerðar þessarar og ber ábyrgð á að rekstur hafnanna sé í samræmi við þau. Hann skal í starfi sínu að öðru leyti fara eftir samþykktum hafnarstjórnar og bæjarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr mál sem leggja á fyrir hafnarstjórn, veitir viðtöku erindum til hennar og sér um að framfylgja samþykktum hennar. Hann veitir hafnarstjórn og bæjarstjórn upplýsingar um málefni hafnanna og ráðgjöf um málefni er varða rekstur þeirra. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs. Hafnarstjóri er yfirmaður allra starfsmanna hafnanna og fer með stjórnun starfsmannamála vegna þeirra, þar með talið ráðningu undirmanna sinna og uppsagnir, í samráði við hafnarstjórn.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á öllu hafnarsvæðinu hvort sem er á sjó eða landi. Öllum er skylt að hlýða fyrirmælum hans innan marka hafnarsvæða Fjallabyggðarhafna, eða þeirra sem hann felur störf við eftirlit og aðgæslu innan sömu svæða.

5. gr. Um aðra starfsmenn hafnanna.

Hafnarstarfsmenn sem hafa umsjón með eignum hafnanna, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

Starfsmenn hafnanna skulu gæta allrar kurteisi í starfi en skipunum þeirra innan hafnarsvæða ber að hlýða þegar í stað. Telji einhver sig órétti beittan af hálfu starfsmanna hafnanna getur hann kært það til hafnarstjóra. Tilskipunum starfsmanns skal þó hlýtt engu að síður.

6. gr. Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

Ekki er hafnsöguskylda í höfnum Fjallabyggðarhafna og enginn hafnsögumaður er starfandi hjá höfnunum. Hafnsöguþjónusta er þó veitt ef þess er óskað.

Ef óskað er hafnsögu, skulu forráðamenn skips tilkynna um ferð þess til hafnarvarða viðkomandi hafnar með minnst 3 klst. fyrirvara. Hafnsögumanni er skylt að fara til móts við skip sem hefur tilkynnt um ferðir sínar með tilskyldum fyrirvara allt að ytri mörkum þess hafnsvæðis sem um ræðir ef skipstjóri æskir þess.

Hafnsögumaður vísar skipinu leið til hafnar og má ekki yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er komið í viðlegu. Heimilt er hafnsögumanni meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu að banna hverjum þeim sem ekki á lögmætt erindi að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð ber forráðamönnum skipsins að sjá honum fyrir fæði.

Fjallabyggðarhafnir veita, eftir atvikum, aðstoð dráttarbáta ef þess er óskað, sjá um bindingu skipa, sölu og afgreiðslu vatns og rafmagns. Yfirhafnarvörður eða æðsti starfsmaður viðkomandi hafnar á vakt ákveður notkun báta og mannafla eftir aðstæðum hverju sinni. Ef hafnsögumaður er á staðnum ræður hann þessum þáttum.

Dráttarbátar á vegum hafnanna eru í þjónustu og á ábyrgð þess skips, er þeir aðstoða, frá því þeir taka við taug, eða fyrirmælum stjórnanda skipsins, er aðstoðar nýtur, og þar til taug er sleppt eða fyrirmæli gefin um að aðstoð sé lokið. Hafnsögumaður skal vera í skipi, er það nýtur aðstoðar dráttarbáts.

7. gr. Löggæsla á hafnarsvæði.

Lögreglan í umdæmi lögreglustjórans á Akureyri hefur á hendi almenna löggæslu á svæði Fjallabyggðarhafna.

Þeim sem ekki eiga lögmætt erindi á hafnarsvæðin er óheimilt að dvelja þar ef þeir torvelda eða hindra lestun, losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Hafnarstjóra og starfsmönnum hafnanna er heimilt að banna ónauðsynlegan akstur hverskonar ökutækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggju, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnarsvæðinu ef þörf krefur. Fólk sem fer um hafnarsvæðið er þar ávallt á eigin áhættu og ábyrgð.

Óheimilt er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða í henni nema að fengnum leyfum lögreglustjóra, hafnarstjóra og bæjaryfirvalda. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu nema að fengnu leyfi hafnarstjóra. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Óheimilt er með öllu að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir. Starfsmenn hafnanna skulu fjarlægja veiðarfæri sem lögð eru á merktar siglingaleiðir á kostnað eiganda, verði hann ekki tafarlaust við tilskipunum þess efnis, enda teljast þau vera í hirðuleysi. Hafnarstarfsmönnum ber ekki skylda til að geyma veiðarfæri sem fjarlægð eru af þessum sökum og bera ekki ábyrgð á skemmdum sem verða á veiðarfærunum við færslu þeirra.

Hafnarstjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er í höfnunum. Hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.

8. gr. Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnarstjóra, tálmar greiðri notkun hafnanna, skal það fært burtu svo fljótt sem auðið er af eiganda, umráðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því, má hafnarstjóri láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað, að vali og eftir mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi skip, til lúkningar á kostnaði, á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en hafnanna, er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnarstjóri fyrirskipa eiganda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað, eftir vali og mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, til lúkningar á kostnaði, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns.

9. gr. Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta á umráðsvæði Fjallabyggðarhafna. Stranglega bannað er að dæla eða láta renna í hafnirnar olíu, lýsi, olíusora eða annað sem valdið getur mengun.

Hvalskurður er bannaður í eða við hafnirnar. Ekki má draga, reka eða flytja á annan hátt, inn í hafnirnar, hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfnunum nema að fengnu leyfi hafnarstjóra. Skulu þá gerðar forsvaranlegar ráðstafanir til að lágmarka áhrif á umhverfi hafnanna.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati hafnarstarfsmanna, gert forsvaranlegar ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.

10. gr. Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfnunum, skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnanna með beiðni þar að lútandi.

Hafnarstjóra er heimilt að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnanna og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum hafnanna um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af vanskilum sem koma fram í 1. málslið greinarinnar.

11. gr. Hverjum gefa skal fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra eða stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipanir og er það jafngilt því að skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

12. gr. Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra sem leið eiga um höfn og hafnarsvæði, vegna skemmda á höfnum, mannvirkjum þeirra eða áhöldum fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja matsmanna, sem dómkvaddir skulu af héraðsdómi þess svæðis sem um ræðir. Í Ólafsfirði skal leitað til héraðsdóms Norðurlands eystra um dómkvaðningu matsmanna og í Siglufirði til héraðsdóms Norðurlands vestra. Hvorum málsaðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, innan mánaðar frá því matsgerð samkvæmt 2. gr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostnaður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostnaður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr. skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

13. gr. Kæruheimild.

Notendum Siglufjarðarhafnar og Ólafsfjarðarhafnar er heimilt að skjóta ákvörðunum hafnarstjórnar samkvæmt reglugerð þessari, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Siglingastofnunar Íslands. Ákvörðunum Siglingastofnunar má skjóta til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

14. gr. Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

15. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og 17. gr. laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt falla úr gildi hafnarreglugerðir fyrir Ólafsfjarðarhöfn, nr. 480/1985, og Siglufjarðarhöfn, nr. 582/2005, með síðari breytingum.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 15. apríl 2010.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.