Samgönguráðuneyti

338/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð um lögskráningu sjómanna, nr. 880/2001 með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Óheimilt er að ráða mann til starfa á íslenskt skip nema hann hafi hlotið öryggisfræðslu hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða hjá öðrum viðurkenndum þjálfunaraðila. Óheimilt er að lögskrá skipverja á íslenskt skip nema hann hafi gengist undir námskeið í öryggis­fræðslu í Slysavarnaskóla sjómanna eða hjá öðrum viðurkenndum þjálfunaraðila. Við lögskráningu skipverja skal lögskráningarstjóri krefjast yfirlýsingar um að skipverji hafi gengist undir slíkt námskeið. Ef slíka yfirlýsingu vantar skal ekki lögskráð fyrr en úr því hefur verið bætt. Skylda til skráningar á grunnöryggisfræðslunámskeið kemur þó ekki til fyrr en skipverji hefur verið lögskráður í 180 daga

Öryggisfræðslu skipverja skal endurnýja eigi sjaldnar en á fimm ára fresti með námskeiði við Slysavarnaskóla sjómanna eða hjá öðrum viðurkenndum þjálfunaraðila. Óheimilt er að ráða mann til starfa á íslenskt skip nema hann hafi endurnýjað öryggisfræðslu við Slysavarnaskóla sjómanna eða hjá öðrum viðurkenndum þjálfunar­aðila. Við lögskráningu skal lögskráningarstjóri krefjast yfirlýsingar um að skipverji hafi gengist undir öryggisfræðslunámskeið á síðastliðnum fimm árum. Ef slíka yfirlýsingu vantar skal ekki lögskráð fyrr en úr því hefur verið bætt. Skylda til skráningar á endurmenntunarnámskeið kemur þó ekki til fyrr en skipverji hefur verið lögskráður í 180 daga. Skipverjar sem gengust undir námskeið í öryggisfræðslu hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða hjá öðrum viðurkenndum þjálfunaraðila á árinu 1997 eða fyrr hafa frest til að gangast undir slíkt námskeið fyrir 1. janúar 2009.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 5. mgr. 7. gr. laga um lögskráningu sjómanna nr. 43/1987 með síðari breytingum, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Samgönguráðuneytinu, 17. mars 2009.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica