Fara beint í efnið

Prentað þann 3. maí 2024

Breytingareglugerð

1637/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 956/2006 um starfshætti þeirra sem annast löggildingar mælitækja í umboði Neytendastofu.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "til eins árs." í 1. mgr. kemur: þar til aðili hefur hlotið faggildingu.
  2. Orðin: "Bráðabirgðaumboð er hægt að framlengja einu sinni til eins árs ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi sem varða ekki aðilann." í 2. mgr. falla brott.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 44. gr. laga um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn nr. 91/2006 og öðlast þegar gildi.

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 30. desember 2022.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Daði Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.