Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Stofnreglugerð

1106/2022

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/25 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 39, og alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS-staðla 4, 7, 9 og 16.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 358/2021, frá 10. desember 2021, um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn (Félagaréttur), skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/25 frá 13. janúar 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 39, og alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS-staðla 4, 7, 9 og 16.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2021/25 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 63/2022, 29. september 2022, bls. 146-157.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 30. september 2022.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Harpa Theodórsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.