Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

967/2022

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2097 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 4.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 357/2021, frá 10. desember 2021, um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn (Félagaréttur), skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2097 frá 15. desember 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 4.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2097 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 18/2022, 17. mars 2022, bls. 131.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 127. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006, öðlast þegar gildi.

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 15. ágúst 2022.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Harpa Theodórsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.