Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

1088/2007

Reglugerð um skipan fulltrúa æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka í Æskulýðsráð samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007.

1. gr.

Menntamálaráðuneytið skal leita eftir tilnefningum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka, sbr. 1. tölul. 2. gr. æskulýðslaga, um tvo einstaklinga, konu og karl til setu í Æskulýðsráði. Í tilnefningunni skal koma fram vilji tilnefndra einstaklinga til að taka að sér setu í Æskulýðsráði, sbr. 6. gr. æskulýðslaga. Þá skal fylgja yfirlit um þekkingu og reynslu tilnefndra af starfi æskulýðsfélaga eða æskulýðssamtaka og staðfesting um að viðkomandi uppfylli ákvæði 10. gr. æskulýðslaga.

2. gr.

Að fengnum tillögum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka skipar menntamálaráðherra fimm fulltrúa til setu í Æskulýðsráði til tveggja ára, sbr. 5. gr. æskulýðslaga. Við skipan í Æskulýðsráð skal hafa til hliðsjónar sem jafnast hlutfall kynja.

3. gr.

Menntamálaráðuneyti mun, ef fleiri en fimm tilnefningar berast um fulltrúa æskulýðssamtaka til setu í Æskulýðsráði, velja á milli tilnefndra aðila. Við það val skal m.a. höfð til viðmiðunar reynsla og þekking viðkomandi einstaklings af starfi æskulýðsfélaga eða æskulýðssamtaka.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. 5. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007 og öðlast þegar gildi.

Menntamálaráðuneytinu, 14. nóvember 2007.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Guðmundur Árnason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.