Menntamálaráðuneyti

576/2002

Reglugerð um jöfnun námskostnaðar. - Brottfallin

576/2002

REGLUGERÐ
um jöfnun námskostnaðar.

1. gr.
Almenn skilyrði.

Nemendur á framhaldsskólastigi, sem fullnægja eftirtöldum skilyrðum eiga rétt til námsstyrkja til jöfnunar á fjárhagslegum aðstöðumun vegna búsetu svo sem nánar er kveðið á um í reglugerð þessari:

a. Nemandi stundar reglubundið nám á framhaldsskólastigi hér á landi, sem ekki er á háskólastigi eða gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi, enda sé um að ræða a.m.k. eins árs skipulagt nám við framhaldsskóla sem falla undir ákvæði laga um framhaldsskóla nr. 80/1996, með áorðnum breytingum. Námsstyrkjanefnd er heimilt að styrkja annað hliðstætt nám á framhaldsskólastigi.
b. Nemandi getur ekki stundað sambærilegt nám frá lögheimili eða öðrum dvalarstað.
c. Nemandi nýtir ekki rétt til láns úr Lánasjóði íslenskra námsmanna eða nýtur hliðstæðrar fyrirgreiðslu.


2. gr.
Skilgreiningar.

Í reglugerð þessari hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem hér greinir:

a. Reglubundið nám. Nemandi telst stunda reglubundið nám hafi hann tekið próf til fullnustu a.m.k. 12 eininga námi á önn sem telst hluti af skipulögðu námi skóla eða skóli staðfestir námsárangur með ástundunarvottorði, ef námi lýkur ekki með prófi. Ef námi er ekki lokið vegna veikinda skal skóli staðfesta móttöku á fullgildu læknisvottorði.
b. Sambærilegt nám. Við mat á því hvort sambærilegt framhaldsnám verði stundað í heimabyggð eða ekki er alfarið vísað til námsbrautarlýsingar samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, ef um nám á 1. ári samkvæmt skipulagi skóla er að ræða. Í fylgiskjali I er listi yfir staði þaðan sem nám á tilgreindum brautum á 1. ári telst ekki styrkhæft vegna dvalar fjarri lögheimili. Á síðari stigum framhaldsnáms þ.e. að loknu 1. ári er ekki vísað til námsbrautarlýsingar heldur til mats umsækjanda á eðli og gæðum skóla eða einstakra námsáfanga.
c. Dvalarstyrkur. Dvalarstyrkur samanstendur af ferðastyrk til og frá námsstað við upphaf og lok námsannar, fæðisstyrk og húsnæðisstyrk.
d. Styrkur til skólaaksturs. Styrkur til skólaaksturs samkvæmt 6. gr. er ferðastyrkur sem úthlutað er til umsækjenda sem ekki njóta dvalarstyrks samkvæmt 4. gr. reglugerð-arinnar.
e. Fjölskylda. Með fjölskyldu nemenda, sbr. 4. gr. og 6. gr., er átt við foreldra (annað eða bæði) og/eða forsjáraðila.


3. gr.
Námsstyrkjanefnd og LÍN.

Námsstyrkjanefnd úthlutar styrkjum til styrkhæfra nemenda að jafnaði einu sinni á ári. Umsækjandi skal skila umsókn til nefndarinnar á þar til gerðum eyðublöðum.

Nefndin auglýsir eftir umsóknum um námsstyrki sérstaklega fyrir haust- og vorönn. Auglýsa skal eftir umsóknum vegna haustannar fyrir 1. september ár hvert og skulu umsóknir hafa borist nefndinni fyrir 31. október s.á. Auglýsa skal eftir umsóknum vegna vorannar fyrir 1. desember ár hvert og skulu umsóknir hafa borist nefndinni fyrir 31. janúar ár hvert. Birta skal auglýsingar um námsstyrki í dagblöðum og með öðrum sannanlegum hætti.

Námsstyrkjanefnd hefur starfsstöð í húsakynnum Lánasjóðs íslenskra námsmanna og annast sjóðurinn alla umsýslu og nauðsynlega framkvæmd fyrir nefndina. LÍN tekur m.a. við umsóknum um námsstyrki, sér um úrvinnslu þeirra, leitar eftir upplýsingum frá skólum um hvort nemandi teljist hafa stundað reglubundið nám, sbr. 2. gr., og annast útborgun námsstyrkja.

Til staðfestingar á því að nemandi stundi reglubundið nám á framhaldsskólastigi ber viðkomandi framhaldsskóla, að ósk námsstyrkjanefndar, að láta nefndinni í té upplýsingar þar að lútandi áður en útborgun námsstyrkja fer fram.

Útborgun námsstyrkja skal fara fram í tvennu lagi og við það miðað að greiðsludagar séu sem næst 10. janúar og 10. júní ár hvert. Skilyrði útborgunar er að skóli hafi staðfest námsárangur eða námsástundun nemandans í lok haustannar og í lok vorannar.

Athugasemdir við niðurstöður námsstyrkjanefndar skulu vera skriflegar og studdar gögnum eftir eðli máls. Þær skulu berast innan 30 daga frá birtingu á niðurstöðu nefndarinnar.


4. gr.
Dvalarstyrkir.
Skilyrði fyrir veitingu dvalarstyrks er að:
a. Nemandi stundi reglubundið framhaldsnám hér á landi sem ekki er á háskólastigi eða gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi, sbr. a-lið 2. gr.
b. Nemandi geti ekki stundað sambærilegt nám frá lögheimili sínu, sbr. skilgreiningu í b-lið 2. gr.
c. Nemandi verði að vista sig a.m.k. 30 km frá lögheimili og fjarri fjölskyldu vegna námsins. Heimilt er að veita dvalarstyrk þótt fjarlægð skv. 1. málsl. sé styttri en 30 km, ef samgöngur til og frá skóla eru nemanda sérstaklega erfiðar m.a. með tilliti til veðráttu og ástands vega eða vegna skorts á almenningssamgöngum.

Nemandi sem ekki á sama lögheimili og fjölskylda hans og dvelur þess vegna fjarri fjölskyldu sinni af annarri ástæðu en vegna námsins getur þó átt rétt á dvalarstyrk enda sýni hann fram á eftirfarandi tengsl við lögheimilsstað:

1. lögheimilishúsnæði er í eigu námsmanns eða hann leigir það;
2. námsmaður hefur sótt fulla vinnu frá lögheimili sínu lengur en 7,5 mánuði sl. 2 ár;
3. námsmaður og maki hafa barn á framfæri sínu, maki dvelur í lögheimilshúsnæði og skráð sambúð á lögheimili hefur varað í a.m.k. eitt ár.

Ef nemandi er yngri en 20 ára og fjölskylda hans á lögheimili erlendis eða fjarri námsstað eins og nemandinn, getur hann átt rétt á dvalarstyrk þó að hann uppfylli ekki eitthvert skilyrða 2. mgr. þessarar greinar. Í slíkum tilvikum skal upphæð dvalarstyrks taka mið af svæði A, nema lögheimili námsmanns og fjölskyldu sé að finna á svæði B eða C. Ef lögheimili þeirra er þá á sitthvoru svæðinu skal styrkurinn taka mið af svæði B.


5. gr.
Upphæð dvalarstyrks.

Fullur dvalarstyrkur nær til ferðastyrks, fæðisstyrks og húsnæðisstyrks. Námsstyrkjanefnd ákveður upphæð fulls dvalarstyrks með hliðsjón af heildarfjárhæð sem veitt er til jöfnunar á námskostnaði á fjárlögum ár hvert.

Staðfesti skóli greiðslu fyrir dvöl á heimavist eða í sambærilegu húsnæði á vegum skóla eða sýni nemandi fram á húsaleigu er upphæð (mögulegs) dvalarstyrks miðuð við staðsetningu lögheimilis og er landinu þá skipt í þrjú svæði: Svæði A (höfuðborgarsvæðið og Akureyri); Svæði B (sveitarfélög og nágrannabyggðir með framhaldsskóla); Svæði C (önnur byggðalög). Í fylgiskjali II er gerð nánari grein fyrir svæðaskiptingunni. Námsstyrkjanefnd er heimilt að veita allt að 15% uppbót á fullan dvalarstyrk til nemenda sem eiga lögheimili á svæði B og allt að 30% uppbót á fullan dvalarstyrk til nemenda sem eiga lögheimili á svæði C.

Greiði nemandi ekki húsaleigu nemur mögulegur dvalarstyrkur sömu upphæð og styrkur vegna skólaaksturs, sbr. 6. gr.


6. gr.
Styrkir vegna skólaaksturs.

Þeir nemendur sem sækja nám frá lögheimili fjarri skóla geta átt rétt á styrk vegna skólaaksturs. Námsstyrkjanefnd ákveður upphæð akstursstyrks með hliðsjón af heildarfjárhæð sem veitt er til skólaaksturs á fjárlögum ár hvert.

Styrkir vegna skólaaksturs skulu renna beint til nemenda enda uppfylli þeir eftirtalin skilyrði:

a. sækja skóla frá lögheimili sínu og fjölskyldu;
b. lögheimili er ekki í nágrenni skóla, sbr. yfirlit á fylgiskjali III yfir staði, sem teljast í nágrenni skóla í þessu samhengi.

Námsstyrkjanefnd er heimilt að víkja frá skilyrði um búsetu hjá fjölskyldu, sbr. a-lið 2. mgr. þessarar greinar, ef eitthvert skilyrða 2. mgr. 4. gr. er uppfyllt.

Til viðbótar akstursstyrk til nemenda er námsstyrkjanefnd heimilt að styðja þá skóla sem skipuleggja daglegan akstur fyrir nemendur sína. Upphæð þessi skal samsvara allt að 15% af fullum aksturstyrk.


7. gr.
Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 6. gr. laga nr. 23/1989 um ráðstafanir til jöfnunar á námskostnaði og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 605/2001.


Menntamálaráðuneytinu, 18. júlí 2002.

Tómas Ingi Olrich.
Guðríður Sigurðardóttir.


Fylgiskjal I.





Fylgiskjal II.
SVÆÐI A:
Svnr. Sveitarfélag
Pnr.
0000 Reykjavíkurborg
101-155
1000 Kópavogsbær
200-203
1100 Seltjarnarneskaupstaður
170
1300 Garðabær
210
1400 Hafnarfjarðarkaupstaður
220;221
1603 Bessastaðahreppur
225
1604 Mosfellsbær
270
6000 Akureyrarkaupstaður
600;603
SVÆÐI B:
Svnr. Sveitarfélag
Pnr.
2000 Reykjanesbær
230;233;235;260
2300 Grindavíkurkaupstaður
240
2503 Sandgerðisbær
245
2504 Gerðahreppur
250
2506 Vatnsleysustrandarhreppur
190
3000 Akraneskaupstaður
300
3502 Skilmannahreppur
301
3503 Innri-Akraneshreppur
301
3504 Leirár- og Melahreppur
301
4100 Bolungarvíkurkaupstaður
415
4200 Ísafjarðarbær
400;401;410
4803 Súðavíkurhreppur
401;420
5200 Sveitarfélagið Skagafjörður
550
6150 Húsavíkurbær
640
6506 Arnarneshreppur
601
6513 Eyjafjarðarsveit
601
6514 Hörgárbyggð
601
6601 Svalbarðsstrandarhreppur
601
7000 Seyðisfjarðarkaupstaður
710
7300 Fjarðabyggð
730;735;740
7505 Fljótsdalshreppur
701
7506 Fellahreppur
701
7618 Austur-Hérað
700;701
7708 Sveitarfélagið Hornafjörður
780
8000 Vestmannaeyjabær
900
8200 Sveitarfélagið Árborg
800;801;820;825
8701 Gaulverjabæjarhreppur
801
8706 Hraungerðishreppur
801
8707 Villingaholtshreppur
801
8716 Hveragerðisbær
801;810
8717 Sveitarfélagið Ölfus
801;810;815
8719 Grímsnes- og Grafningshreppur
801
SVÆÐI C:
Svnr. Sveitarfélag
Pnr.
1606 Kjósarhreppur
270
3501 Hvalfjarðarstrandarhreppur
301
3506 Skorradalshreppur
311
3510 Borgarfjarðarsveit
311;320
3601 Hvítársíðuhreppur
311;320
3609 Borgarbyggð
310;311
3701 Kolbeinsstaðahreppur
311
3709 Grundarfjarðarbær
350
3710 Helgafellssveit
340
3711 Stykkishólmsbær
340
3713 Eyja- og Miklaholtshreppur
311
3714 Snæfellsbær
355;356;360
3809 Saurbæjarhreppur
371
3811 Dalabyggð
370;371
4200 Ísafjarðarbær
425;430;465;470;471
4502 Reykhólahreppur
345;380
4604 Tálknafjarðarhreppur
460
4607 Vesturbyggð
450;451;460;465
4901 Árneshreppur
522;523;524
4902 Kaldrananeshreppur
520
4908 Bæjarhreppur, Strand.
500
4909 Broddaneshreppur
500;510
4910 Hólmavíkur- og Kirkjubólshr.
510
5000 Siglufjarðarkaupstaður
580
5200 Sveitarfélagið Skagafjörður
551;560;565;566;570
5508 Húnaþing vestra
500;530;531
5601 Áshreppur
541
5602 Sveinsstaðahreppur
541
5603 Torfalækjarhreppur
541
5604 Blönduósbær
540;541
5605 Svínavatnshreppur
541
5606 Bólstaðarhlíðarhreppur
541;560
5609 Höfðahreppur
545
5611 Skagabyggð
541;545
5706 Akrahreppur
560
6150 Húsavíkurbær
641
6200 Ólafsfjarðarbær
625
6400 Dalvíkurbyggð
620;621
6501 Grímseyjarhreppur
611
6504 Hríseyjarhreppur
630
6602 Grýtubakkahreppur
601;610
6607 Skútustaðahreppur
660
6609 Aðaldælahreppur
641
6611 Tjörneshreppur
641
6612 Þingeyjarsveit
601;641;645;650
6701 Kelduneshreppur
671
6702 Öxarfjarðarhreppur
670;671
6705 Raufarhafnarhreppur
675
6706 Svalbarðshreppur
675;681
6707 Þórshafnarhreppur
680;681
7501 Skeggjastaðahreppur
685
7502 Vopnafjarðarhreppur
690
7509 Borgarfjarðarhreppur
720
7512 Norður-Hérað
701
7605 Mjóafjarðarhreppur
715
7610 Fáskrúðsfjarðarhreppur
750
7611 Búðahreppur
750
7612 Stöðvarhreppur
755
7613 Breiðdalshreppur
760
7617 Djúpavogshreppur
765
7708 Sveitarfélagið Hornafjörður
781;785
8508 Mýrdalshreppur
870;871
8509 Skaftárhreppur
880
8610 Ásahreppur
851
8613 Rangárþing eystra
860;861
8614 Rangárþing ytra
850;851;861
8709 Gnúpverjahreppur
801
8710 Hrunamannahreppur
845
8711 Bláskógabyggð
801;840;270
8720 Skeiða- og Gnjúpverjahreppur
801


Fylgiskjal III.

Staðir í nágrenni framhaldsskóla.

Svnr. Sveitarfélag
Pnr.
0000 Reykjavíkurborg
101-155
1000 Kópavogsbær
200-203
1100 Seltjarnarneskaupstaður
170
1300 Garðabær
210
1400 Hafnarfjarðarkaupstaður
220;221
1603 Bessastaðahreppur
225
1604 Mosfellsbær
270
2000 Reykjanesbær
230;235;260
3000 Akraneskaupstaður
300
3503 Innri-Akraneshreppur
3011)
3711 Stykkishólmsbær
340
3714 Snæfellsbær
355;360
4200 Ísafjarðarbær
400;410
5200 Sveitarfélagið Skagafjörður
550
6000 Akureyrarkaupstaður
600;603
6150 Húsavíkurbær
640;650;6412)
7300 Fjarðabyggð
740
7506 Fellahreppur
7013)
7618 Austur-Hérað
700
7708 Sveitarfélagið Hornafjörður
780
8000 Vestmannaeyjabær
900
8200 Sveitarfélagið Árborg
800
8711 Bláskógabyggð
840
1) Frá Miðgarði að Akranesi.
2) Umhverfis Laugar að þjóðvegi 1.
3) Fellabær.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica