Mennta- og menningarmálaráðuneyti

430/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð um sveinspróf nr. 698/2009.

1. gr.

Við 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður er orðast svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. máls­liðar 1. mgr. 3. gr. er próftaka heimil nemanda sem á innan við 10% ólokið af vinnustaðanámi, sam­kvæmt nánari útfærslu ráðuneytisins.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 30. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 27. mars 2018.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica