Mennta- og menningarmálaráðuneyti

644/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð um námsstyrki, nr. 692/2003, með áorðnum breytingum.

1. gr.

2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Hámarksaðstoðartími er fjögur ár eða 8 annir.

2. gr.

Við 2. mgr. 3. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi:

Síðasti dagur til að gera athugasemdir eða skila inn gögnum er 1. september ár hvert vegna námsársins á undan.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. 8. gr. laga um námsstyrki, nr. 79/2003 og öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 6. ágúst 2010.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica