Mennta- og menningarmálaráðuneyti

1007/2009

Reglugerð um breyting á reglugerð um skipan og störf starfsgreinaráða nr. 711/2009.

1. gr.

Á eftir staflið g í 3. gr. kemur nýr stafliður, svohljóðandi: sjávarútvegs- og siglinga­greinum.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.

 

1)

Í stað orðanna "einn tilnefndur" á undan "af Samtökum atvinnulífsins" í 7. mgr. kemur: tveir tilnefndir.

 

2)

Orðin "tilnefndur af Félagi skipstjórnarmanna" í 7. mgr. falla brott.

 

3)

Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

   

Í starfsgreinaráði sjávarútvegs- og siglingagreina eiga sæti sjö fulltrúar, tveir tilnefndir af Alþýðusambandi Íslands, einn tilnefndur af Farmanna- og fiskimanna­sambandi Íslands og þrír tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins. Einn fulltrúi er tilnefndur sameiginlega af Félagi íslenskra framhaldsskóla og Kennara­sambandi Íslands.



3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 25. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 16. desember 2009.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica