Mennta- og menningarmálaráðuneyti

1103/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 697/2009 um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 15. gr., og með vísan til ákvæðis I til bráðabirgða í lögum nr. 92/2008 um framhaldsskóla skulu ákvæði reglugerðarinnar koma til framkvæmda 1. ágúst 2011. Fram til þess tíma fer um skipulag og framkvæmd starfsþjálfunar og vinnustaðanáms samkvæmt reglugerð nr. 280/1997 um námssamninga og starfsþjálfun með áorðnum breytingum.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 28. gr. laga nr. 92/2008, sbr. ákvæði I og III til bráðabirgða sömu laga, öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 16. desember 2009.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica