Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Breytingareglugerð

657/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð um miðlun og meðferð upplýsinga um nemendur í grunnskólum og rétt foreldra til aðgangs að upplýsingum um börn sín, nr. 897/2009.

1. gr.

  1. Á eftir 7. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, svohljóðandi:

    Grunnskólum er heimilt að nota rafrænt upplýsingakerfi til skráningar og miðlunar upplýsinga um nemendur samkvæmt þessari reglugerð. Ennfremur getur skóli notað slíkt kerfi til þess að veita foreldrum aðgang að upplýsingum og til samskipta við þá. Komi fram rökstudd beiðni frá foreldrum um að aðgangur að upplýsingum verði jafnframt veittur með öðrum hætti, s.s. með tölvupósti, símleiðis eða bréfleiðis, skal starfsfólk skóla leitast við að verða við slíkum beiðnum, enda þjóni það hagsmunum og þörfum barnsins. Tillit skal tekið til eðlis og mikilvægis þeirra upplýsinga sem um ræðir hverju sinni og hvort sérþarfir barns eða sérstakar aðstæður kalli á að samskipti séu með tilteknum hætti.

  2. Fyrirsögn á undan greininni orðast svo: Skráning og samskipti.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 18. gr. og 4. mgr. 27. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, og öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 15. júní 2011.

Svandís Svavarsdóttir.

Karitas H. Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.