Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

375/2010

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1430/2007 um breytingar á viðaukum II og III með tilskipun Evrópusambandsins og ráðsins nr. 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 142/2008 frá 26. október 2007 gildir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB), nr. 1430/2007 frá 5. desember 2007, um breytingar á viðaukum II og III með tilskipun Evrópusambandsins og ráðsins nr. 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

2. gr.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 21, 17. árg., bls. 1.

3. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1430/2007 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. gr. laga nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 27. apríl 2010.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.