Menntamálaráðuneyti

655/2009

Reglugerð um starfsumhverfi leikskóla.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til aðstöðu, búnaðar, slysavarna og öryggismála í leikskólahúsnæði og á leikskólalóðum á vegum sveitarfélaga og annarra rekstraraðila, sbr. 25. gr. laga nr. 90/2008, um leikskóla.

2. gr.

Ábyrgð og samráð.

Sveitarfélag annast undirbúning og framkvæmd byggingar leikskólahúsnæðis og annarrar aðstöðu fyrir leikskóla á þeirra vegum svo og kaup á tækjum og búnaði fyrir skólana. Við undir-búning nýrra leikskóla og meiriháttar breytinga á eldra húsnæði skal leitað eftir samráði við foreldra og starfsfólk leikskóla.

Þegar um er að ræða rekstur leikskóla á vegum annarra aðila en sveitarfélaga er undir­búningur, gerð nýs skólahúsnæðis, viðhald þess og endurnýjun og viðhald búnaðar á ábyrgð og kostnað hlutað-eigandi rekstraraðila.

3. gr.

Skólahúsnæði, skólalóð og búnaður.

Húsnæði, skólalóð og allur búnaður skal uppfylla kröfur laga nr. 90/2008 um leikskóla, reglu­gerðar þessarar, aðalnámskrár leikskóla og laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustu­hætti og öryggi á vinnustöðum. Einnig ber að uppfylla kröfur heilbrigðis- og bygg­ingar­yfirvalda til slíkra mannvirkja.

4. gr.

Skipulag og hönnun.

Skipulag og hönnun leikskóla skal taka mið af áætluðum hámarksfjölda barna í skól­anum, samsetningu og þörfum barnahópsins, aldri barna og lengd dvalartíma.

Við skipulag og hönnun leikskóla skal leitast við að tryggja börnum og starfsfólki skóla öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi. Er þar sérstaklega átt við hentugan húsbúnað, hljóðvist og lýsingu og fjölbreytni í náms- og leikaðstöðu og öðrum búnaði.

5. gr.

Lágmarksaðstaða.

Til nauðsynlegrar lágmarksaðstöðu í leikskólum telst:

  1. deildarrými og viðeigandi aðstaða, búnaður og tækjakostur fyrir leik, nám og hvíld barna samkvæmt lögum um leikskóla og aðalnámskrá leikskóla,
  2. rými fyrir sérfræðiþjónustu vegna barna með sérþarfir,
  3. fjölnotarými til hreyfileikja, þjálfunar, listsköpunar og annarra viðburða,
  4. aðstaða til að neyta málsverða,
  5. aðskilin hreinlætisaðstaða fyrir börn og starfsfólk,
  6. þurrkaðstaða fyrir fatnað barna og starfsfólks,
  7. afmörkuð og skipulögð skólalóð með áherslu á sem mesta fjölbreytni í leik- og námsaðstöðu með tilliti til mismunandi aldurshópa og þarfa, þ.m.t. þarfa fatlaðra barna,
  8. vinnurými fyrir leikskólastjóra, aðstoðarleikskólastjóra og annað starfsfólk,
  9. setustofa fyrir starfsfólk.

6. gr.

Fjöldi barna.

Leikskólastjóri, að höfðu samráði við sveitarstjórn eða nefnd sveitarfélags sem fer með málefni leikskóla í sveitarfélaginu, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla og starfsfólk leikskóla, tekur ákvörðun um fjölda barna í leikskóla hverju sinni. Ákvörðun um fjölda barna og skipulag skólastarfs skal taka mið af samsetningu barnahópsins, dvalartíma barna dag hvern, aldri þeirra og þörfum, samsetningu starfsmannahóps og umfangi sérfræðiþjónustu.

Til að ná markmiðum laga um leikskóla og aðalnámskrár skal þess gætt að nægilegt rými sé fyrir hvert barn á hverri deild þar sem meginhluti umönnunar, náms og uppeldis fer fram. Huga ber sérstaklega að því að börn með sérþarfir geti eftir atvikum þurft aukið rými svo sem vegna nauðsynlegra stoðtækja.

Sveitarfélögum er heimilt að binda leyfi sveitarfélags til annarra rekstraraðila við ákveðinn hámarksfjölda barna, sbr. 15. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla. Að öðru leyti fara rekstararaðilar með ákvörðun um fjölda barna, sbr. 1. mgr.

7. gr.

Fjöldi starfsfólks.

Sveitarstjórn eða annar rekstaraðili tekur ákvörðun um fjölda og samsetningu starfs­manna­hóps í samráði við leikskólastjóra. Ákvörðunin skal byggjast á mati og tillögum leikskólastjóra og miðast við aldur, þarfir og fjölda barna. Sé um að ræða börn með sérþarfir skal leita álits viðkomandi greiningaraðila.

8. gr.

Dvalartími barna.

Starfsemi og skipulag leikskólastarfs skal taka mið af aldri, þörfum og hagsmunum barna með sérstöku tilliti til daglegs dvalartíma. Æskilegt er að dvalartími barna í leikskóla sé að jafnaði ekki lengri en níu klst. á dag. Gera skal ráð fyrir að börn fái a.m.k. 4 vikna sumarleyfi.

9. gr.

Öryggi og slysavarnir.

Húsnæði, lóð, aðstaða, búnaður og öll starfsemi sem börn taka þátt í á vegum leikskóla skal miðast við að öryggi barna sé sem tryggast.

Barn er á ábyrgð skólans á meðan það dvelur þar, þegar það tekur þátt í skipulögðu skólastarfi hvort sem er innan skólans, á lóð skólans eða í ferðum á vegum skólans. Þegar um er að ræða vettvangsferðir leikskólabarna með hópbifreiðum eða í tilvikum skóla­aksturs bera sveitarfélög eða aðrir rekstraraðilar ábyrgð á að uppfylltar séu kröfur laga og reglugerða um umferðaröryggi.

10. gr.

Handbók um öryggi barna og slysavarnir í leikskólum.

Sveitarstjórn skal útbúa handbók fyrir starfsfólk leikskóla með leiðbeinandi reglum um öryggi barna og slysavarnir í leikskólum. Leiðbeiningar þessar skulu grundvallaðar á gildandi lögum og reglugerðum um öryggis-, skipulags- og byggingarmál og sam­ræmdum starfsleyfisskilyrðum fyrir leikskóla, sbr. lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunar­varnir, með síðari breytingum. Leiðbeiningar þessar skulu staðfestar af sveitar­stjórn sem jafnframt skal sjá um að þær séu aðgengilegar almenningi á heimasíðu skólans eða sveitar­félagsins eða með öðrum hætti og kynntar í skólasamfélaginu.

Sambandi íslenskra sveitarfélaga og menntamálaráðuneyti ber að móta leiðbeiningar um gerð slíkrar handbókar.

11. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 225/1995 um starfsemi leikskóla.

Menntamálaráðuneytinu, 3. júlí 2009.

Katrín Jakobsdóttir.

Baldur Guðlaugsson.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica