Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

556/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð um Kvikmyndasjóð, nr. 229/2003, með síðari breytingum.

1. gr.

Við 5. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Mennta- og menningarmálaráðuneyti er heimilt að veita Kvikmyndamiðstöð Íslands tímabundnar heimildir til styrkveitinga úr Kvikmyndasjóði til mála sem falla undir starfssvið sjóðsins, til dæmis vegna forsendubrests eða óvæntra áfalla við gerð kvikmynda.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1. málsl. 13. gr. kvikmyndalaga nr. 137/2001 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 20. maí 2020.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Páll Magnússon.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.