Fara beint í efnið

Prentað þann 29. apríl 2024

Breytingareglugerð

1639/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um búsetu fyrir börn með miklar þroska- og geðraskanir, nr. 1038/2018.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Orðin "og ákvæðum reglugerðar um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu, nr. 1054/2010, einnig eftir því sem við á," í 3. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar falla brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Fyrirsögn greinarinnar verður: Ábyrgð sveitarfélags.
  2. Orðin ", ákvæði reglugerðar um starfsleyfi til félagasamtaka, sjálfseignarstofnana og annarra einkaaðila sem hyggjast veita fötluðu fólki þjónustu" í 1. mgr. falla brott.
  3. Í stað orðsins: "velferðarráðuneytinu" í 3. mgr. kemur: Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og Barna- og fjölskyldustofu.

3. gr.

Á eftir 3. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 3. gr. a, svohljóðandi:

Rekstrarleyfisskylda.

Einkaaðilum, sem hyggjast veita þjónustu á grundvelli laga nr. 38/2018 og reglugerðar þessarar er skylt að afla rekstrarleyfis Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála áður en byrjað er að veita þjónustuna.

Um málsmeðferð leyfisveitinga fer samkvæmt ákvæðum laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðunum "Sveitarfélög annast" í 1. mgr. kemur: innra.
  2. Í stað orðanna: "5. gr. laga" í 1. mgr. kemur: 11. gr. laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021.
  3. Í stað orðanna: "reglugerð um eftirlit og eftirfylgni vegna þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir" í 2. mgr. kemur: lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021.

5. gr.

Í stað orðsins "Þjónustuteymi" í 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: Stuðningsteymi.

6. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo með fyrirsögn:

Stuðningsáætlun.

Ef fyrir liggur samþykki barns og/eða foreldris fyrir samþættingu þjónustu og tilnefndur hefur verið málstjóri, sbr. lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021 skal stuðningsteymi eftir því sem tilefni er til gera grein fyrir markmiðum með þjónustu sem veitt er á grundvelli laga nr. 38/2018 og reglugerðar þessarar í stuðningsáætlun.

Áður en barn verður 18 ára skal stuðningsteymi gera áætlun þar sem fjallað er um þjónustu fyrir barnið eftir að það nær fullorðinsaldri, eftir atvikum í samstarfi við þjónustuteymi, sbr. 12. gr. laga nr. 38/2018.

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 3. mgr. 21. gr. og 6. tölul. 1. mgr. 40. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Mennta- og barnamálaráðuneytinu, 16. desember 2022.

Ásmundur Einar Daðason.

Erna Kristín Blöndal.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.