Atvinnuvegaráðuneyti

344/2026

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 204/2023 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2325 um að fastsetja, samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848, skrána yfir þriðju lönd og skrána yfir eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðila sem hafa verið viðurkennd að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 9. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/883 frá 14. maí 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2325 er varðar viðurkenningu á tilteknum þriðju löndum og eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 265/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 261.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög um matvæli, nr. 93/1995.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. mars 2026.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 10. apríl 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica