Bráðabirgðaákvæði reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Svo hægt sé að tryggja nægilegt framboð á tilbúnum áburði fyrir árið 2026 skal, þrátt fyrir ákvæði 3. gr. reglugerðar þessarar, vera heimilt til ársloka 2026 að flytja inn og nota hérlendis ólífrænan áburð, sem inniheldur fosfór og inniheldur kadmíum að hámarki 136 mg Cd/kg P eða 60 mg Cd/kg P2O5. Leggja skal fram staðfestingu á kadmíuminnihaldi skv. ákvæðum 3. gr. og önnur skilyrði reglugerðarinnar standa óbreytt.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 15. desember 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Svava Pétursdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 9. janúar 2026