Við reglugerðina bætist eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða:
Þrátt fyrir ákvæði 7. og 8. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar skal Fiskistofa fella úr gildi leyfi til strandveiða, frá sama tíma og strandveiðar eru stöðvaðar með auglýsingu í Stjórnartíðindum sbr. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar á árinu 2025.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a. og 16. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi við lok fiskveiðiársins þann 31. ágúst 2025.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 15. júlí 2025.
F.h.r.
Kolbeinn Árnason.
Jón Þrándur Stefánsson.
B deild - Útgáfudagur: 16. júlí 2025