759/2025
Um (4.) breytingu á reglugerð nr. 543/2024 um áburðarvörur. REGLUGERÐ um (4.) breytingu á reglugerð nr. 543/2024 um áburðarvörur.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2770 frá 15. júlí 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1009 að því er varðar viðmiðanir um lífbrjótanleika fyrir húðunarefni og vatnsheldnifjölliður. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 61.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. júní 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 3. júlí 2025