Fara beint í efnið

Prentað þann 8. maí 2024

Breytingareglugerð

322/2024

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 188/2020, um veiðar á humri.

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina orðist svo:

Allar veiðar á humri í fiskveiðilandhelgi Íslands eru bannaðar frá og með 16. mars 2024 til og með 15. mars 2026.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 8. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast gildi 15. mars 2024.

Matvælaráðuneytinu, 4. mars 2024.

Katrín Jakobsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.