Fara beint í efnið

Prentað þann 9. maí 2024

Breytingareglugerð

31/2024

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 849/2023, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024 og almanaksárið 2024.

1. gr.

3. tl., Norsk-íslensk síld og 4. tl., Norðuríshafsþorskur, í töflu í 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Tegund Leyfilegur
heildarafli
Dregið frá heildarafla skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar
3. Norsk-íslensk síld 60.842 3.225 57.617
4. Norðuríshafsþorskur: 4.074 216 3.858
Til úthlutunar innan efnahagslögsögu Noregs 4.074 216 3.858
Til úthlutunar innan efnahagslögsögu Rússlands

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 18. janúar 2024.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.