Fara beint í efnið

Prentað þann 5. maí 2024

Breytingareglugerð

1385/2023

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 204/2023 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2325 um að fastsetja, samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848, skrána yfir þriðju lönd og skrána yfir eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðila sem hafa verið viðurkennd að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2047 frá 24. október 2022 um leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2325 er varðar viðurkenningu á tilteknum eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið. Reglugerðin er innleidd á grundvelli ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 212/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 389.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2049 frá 24. október 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2325 er varðar viðurkenningu á tilteknum eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið. Reglugerðin er innleidd á grundvelli ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 258/2023, frá 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 16. nóvember 2023, bls. 422.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2468 frá 15. desember 2022 um leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2325 er varðar viðurkenningu á eftirlitsaðilanum "IMOCERT Latinoamérica Ltda" að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið. Reglugerðin er innleidd á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 259/2023, frá 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 16. nóvember 2023, bls. 428.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/186 frá 27. janúar 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2325 er varðar viðurkenningu á tilteknum eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið. Reglugerðin er innleidd á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 259/2023, frá 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 16. nóvember 2023, bls. 430.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 24. nóvember 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.