Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1403/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1201/2022 um loðnuveiðar grænlenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands fiskveiðiárið 2022/2023.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðist svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar er einnig heimilt til 23. desember 2022 að stunda veiðar á loðnu með flotvörpu á svæði sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

  1. 67°11´ N - 14°30´ V
  2. 67°20´ N - 18°00´ V
  3. 68°00´ N - 18°00´ V
  4. 68°00´ N - 14°30´ V

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 8. gr., 9. gr. og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og 9. gr. laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Reglugerðin öðlast gildi nú þegar við birtingu og gildir til 23. desember 2022.

Matvælaráðuneytinu, 14. desember 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.