Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

1032/2022

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/779/EB og 2007/240/EB.

1. gr.

Við reglugerðina bætist tveir nýir töluliðir, 6. og 7. tl, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1219 frá 14. júlí 2022 um breytingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum samsettum afurðum til Sambandsins og umflutnings þeirra um Sambandið.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/7 frá 5. janúar 2022 um breytingu á V. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar dýraheilbrigðiskröfur vegna komu mjólkurafurða í samsettum afurðum, sem halda stöðugleika við geymslu, inn í Sambandið.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar sem nefndar eru í 1. gr. eru birtar sem fylgiskjöl 1 og 2 við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 25. ágúst 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.