Fara beint í efnið

Prentað þann 26. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 15. ágúst 2023

1004/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 972/2022 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2022/2023.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt bráðabirgðaákvæði sem orðast svo:

Heimilt er að flytja óveitt aflamark í hörpudiski (Breiðafjarðarskel) frá fiskveiðiárinu 2021/2022 yfir á fiskveiðiárið 2022/2023 sem hér segir:

Á veiðisvæðið Breiðasund 2.700 kg, sbr. reglugerð nr. 890/2020 um veiðisvæði hörpudisks.

Á veiðisvæðið Hvammsfjörður 31.000 kg, sbr. reglugerð nr. 890/2020 um veiðisvæði hörpudisks.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 16. gr., sbr. 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. ágúst 2023.

Matvælaráðuneytinu, 6. september 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.