Matvælaráðuneyti

928/2022

Reglugerð um (47.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/85 frá 20. janúar 2022 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarks­gildi leifa fyrir flóníkamíð í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 112/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 541.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1531 um breytingu á II., III. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarks­gildi leifa aklónífen, akrínatrín, Bacillus pumilus QST 2808, etrímól, penþíópýrad, píklóram og Pseudomonas sp. Stofn DSMZ 13134 í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 245.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1771 um breytingu á I. viðauka við reglu­gerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hreðkublöð. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 270.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1795 um leiðréttingu á reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarksgildi leifa af terbútýlasín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 272.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1804 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarksgildi leifa fyrir bentasón í ertum með fræbelg. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 275.
  6. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1807 um breytingu á II., III. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarks­gildi leifa af asíbensólar-S-metýl, vatnsútdrætti spíraðra fræja af sætri Lupinus albus, asoxýstróbín, klópýralíð, sýflúfenamíð, fludíoxoníl, flúópýram, fosetýl, metasaklór, oxaþíapíprólín, tebúfenósíð og þíabendasól í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 288.
  7. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1810 frá 14. október 2021 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarks­­gildi leifa af efninu sípródínil í eða á bláberjum, trönuberjum, rifsberjum og blæju­berjum. Umsókn barst um notkun efnisins á þessar plöntur. Notkunin var heimiluð í ljósi niður­stöðu vísindaálits EFSA á áhrifum á neytendur og því þarf að breyta hámarks­gildunum. Hámarks­gildum breytt í II. viðauka við reglugerð nr. 396/2005/EB. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 325.
  8. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1881 frá 26. október 2021 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarksgildi leifa ímídaklópríð í eða á tilteknum afurðum. Hámarksgildi leifa ímídaklópríðs eru lækkuð í ýmsum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 109/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 340.
  9. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1884 frá 27. október 2021 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarks­­gildi leifa klórantranílípról í belgjurtum. Hámarksgildi leifa klóratranílípróls í belg­jurtum eru hækkuð. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 109/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 355.
  10. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1864 frá 22. október 2021 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarksgildi leifa af efnunum amísúlbrom, flúbendíamíð, meptýldínókap, meta­flúmísón og própíneb í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 110/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 368.
  11. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1841 frá 20. október 2021 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarksgildi leifa af 6-besýladenín og amínópýralið í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 397.
  12. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1842 frá 20. október 2021 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarksgildi leifa af flúpýradífúron og díflúorediksýu í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 410.
  13. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2202 frá 9. desember 2021 um breytingu á II., III. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarksgildi leifa asekínósýl, Bacillus subtilis stofn IAB/BS03, emamektín, flútolaníl og imasamox í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 424.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 21. júní 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica