Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 27. apríl 2023

816/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 460/2022, um strandveiðar fiskveiðiárið 2021/2022.

1. gr.

Við reglugerðina bætist eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða:

Þrátt fyrir ákvæði 7. og 8. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar skal Fiskistofa fella úr gildi leyfi til strandveiða, frá sama tíma og strandveiðar eru stöðvaðar með auglýsingu í Stjórnartíðindum sbr. 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 7. júlí 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Guðmundur Jóhannesson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.