Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

721/2022

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/572/EB og 2007/240/EB.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýr töluliður, 5. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1469 frá 10. september 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar að bæta við nýrri fyrirmynd að vottorði fyrir afurðir úr dýraríkinu sem eru upprunnar í Sambandinu, eru fluttar til þriðja lands eða yfirráðasvæðis og fluttar aftur til Sambandsins eftir affermingu, geymslu og endurfermingu í því þriðja landi eða yfirráðasvæði, um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar skrána yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn í Sambandið afurðir úr dýraríkinu sem eru upprunnar í Sambandinu og fara þangað aftur frá þriðja landi eða yfirráðasvæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar skrá yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins og tilteknar vörur sem eru upprunnar í Sambandinu og fara þangað aftur frá þriðja landi eða svæði þess.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 20. maí 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.