Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 31. des. 2022

554/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 324/2022 um heimild færeyskra skipa til veiða á kolmunna við Ísland á árinu 2022.

1. gr.

1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Fiskiskipum sem leyfi hafa fengið til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands skv. 1. gr., er skylt að halda afladagbækur sem uppfylla ákvæði í kafla III og viðauka IV í reglum Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). Senda skal Fiskistofu staðfestar löndunartölur sundurliðaðar eftir tegundum þegar að löndun lokinni.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 25. apríl 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.