Prentað þann 28. mars 2024
531/2022
Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði út af Austurlandi, miðsvæði.
1. gr.
Frá 5. maí 2022 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði út af Austurlandi, miðsvæði sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 64°40,00N - 13°00,00V
- 64°40,00N - 15°00,00V
- 65°00,00N - 15°00,00V
- 65°00,00N - 13°00,00V
- 64°40,00N - 13°00,00V
2. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 7. gr., 8. gr. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. ágúst 2022.
Matvælaráðuneytinu, 4. maí 2022.
F. h. r.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Guðmundur Jóhannesson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.