Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 23. apríl 2024

Stofnreglugerð Reglugerð án breytinga, sjá breytingasögu.

454/2022

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/779/EB og 2007/240/EB.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/779/EB og 2007/240/EB. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2021, frá 19. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 17. febrúar 2022, bls. 166.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/617 frá 14. apríl 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235 og (ESB) 2020/2236 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum og dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu tiltekinna lagardýra og dýraafurða inn í Sambandið. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 57.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/619 frá 15. apríl 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235, (ESB) 2020/2236 og (ESB) 2021/403 að því er varðar umbreytingarákvæði vegna notkunar á dýraheilbrigðisvottorðum, dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 71.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/36 frá 11. janúar 2022 um breytingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum lifandi lagardýrum og afurðum úr dýraríkinu inn í Sambandið.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1469 frá 10. september 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar að bæta við nýrri fyrirmynd að vottorði fyrir afurðir úr dýraríkinu sem eru upprunnar í Sambandinu, eru fluttar til þriðja lands eða yfirráðasvæðis og fluttar aftur til Sambandsins eftir affermingu, geymslu og endurfermingu í því þriðja landi eða yfirráðasvæði, um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar skrána yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn í Sambandið afurðir úr dýraríkinu sem eru upprunnar í Sambandinu og fara þangað aftur frá þriðja landi eða yfirráðasvæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar skrá yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins og tilteknar vörur sem eru upprunnar í Sambandinu og fara þangað aftur frá þriðja landi eða svæði þess.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1219 frá 14. júlí 2022 um breytingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum samsettum afurðum til Sambandsins og umflutnings þeirra um Sambandið.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/7 frá 5. janúar 2022 um breytingu á V. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar dýraheilbrigðiskröfur vegna komu mjólkurafurða í samsettum afurðum, sem halda stöðugleika við geymslu, inn í Sambandið.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/854 frá 31. maí 2022 um breytingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum afurðum úr dýraríkinu inn í Sambandið.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1329 frá 10. ágúst 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235, (ESB) 2020/2236, (ESB) 2021/403 og (ESB) 2021/404 að því er varðar að framlengja umbreytingartímabil vegna notkunar á dýraheilbrigðisvottorðum, dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum sem krafist er vegna komu tiltekinna sendinga inn í Sambandið.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2504 frá 19. desember 2022 um breytingu á III. og V. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum lagarafurðum og mikið unnum afurðum úr dýraríkinu inn í Sambandið og fyrirmynd að eigin staðfestingu vegna innflutnings á tilteknum samsettum afurðum inn í Sambandið.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1471 frá 18. ágúst 2021 um breytingu og leiðréttingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235 og (ESB) 2020/2236 að því er varðar tilvísanir til landsráðstafana sem gerðar eru til að takmarka áhrif tiltekinna sjúkdóma í lagardýrum ásamt skrám yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr og vörur til Sambandsins.

Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2021, frá 19. mars 2021 og nr. 230/2021, frá 24. september 2021.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/36 sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi fjallar um heilbrigði dýra og gildir um öll stig framleiðslu, vinnslu, dreifingu og innflutning á afurðum úr dýraríkinu og afurðum úr þeim sem ætlaðar eru til neyslu, merkingar búfjár, rekjanleika afurða og tilkynningaskylda sjúkdóma með þeim takmörkunum sem leiðir af I. kafla I. viðauka EES-samningsins, og lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

4. gr.

Ákvæði reglugerðar (ESB) 2020/2235, að því er EES-samninginn varðar, eru aðlöguð sem hér segir:

Í III. viðauka er orðunum "Íslands, Noregs" bætt við á eftir orðinu "Finnlands" í 4. mgr. II. hluta athugasemda í II. hluta 1. kafla, 3. mgr. II. hluta athugasemda í II. hluta 3. kafla og 3. mgr. II. hluta athugasemda í II. hluta 19. kafla og á eftir orðinu "Svíþjóðar" í 2. mgr. II. hluta athugasemda í II. hluta 13. kafla.

5. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.