Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Breytingareglugerð

401/2022

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 964/2019, um veiðar á rækju.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðist svo:

Allar veiðar á rækju í Ísafjarðardjúpi eru bannaðar frá og með 30. mars 2022 til og með 31. ágúst 2022.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. ágúst 2022.

Matvælaráðuneytinu, 30. mars 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.