Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2023

299/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1661/2021 um togveiðar á kolmunna árið 2022.

1. gr.

2. mgr. 2. gr reglugerðarinnar orðist svo:

Fyrir tímabilið 1. janúar 2022 til 31. desember 2022 er leyfilegur heildarafli sem hér segir (magn í tonnum):

Tegund Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar
Kolmunni 158.827 8.418 150.409

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 3. og 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 8. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, 2. og 9. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 8. mars 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.