Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Breytingareglugerð

278/2022

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 186/2020, um tímabundið bann við veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars.

1. gr.

1. málsliður 1. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Allar veiðar með fiskibotnvörpu eru bannaðar á eftirfarandi veiðisvæðum humars frá og með 16. mars 2022 til og með 15. mars 2024:

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 8. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast gildi 15. mars 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 173/2021 um (1.) breytingu á reglugerð nr. 186/2020, um tímabundið bann við veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars.

Matvælaráðuneytinu, 4. mars 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.