Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 5. nóv. 2022

258/2022

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 1163/2021 um loðnuveiðar grænlenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands fiskveiðiárið 2021/2022.

1. gr.

1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Grænlenskum skipum er heimilt að veiða samtals 64.265 tonn af loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 8. gr., 9. gr. og 13. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og 1. mgr. 2. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 23. febrúar 2022.

Svandís Svavarsdóttir
matvælaráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.